Djúpadalsá
Djúpadalsá í Reykhólahreppi
Djúpadalsá er bergvatnsá sem á upptök sín í Reiphólsfjöllum í nágrenni Þorskafjarðarheiðar. Djúpadalsá rennur til sjávar í Djúpafirði. Áin á sér fáa liðsmenn hvað vatnsmagn varðar á nokkuð langri leið til sjávar og er því frekar sein til mikilla vatnavaxta og vatn árinnar skolast ekki nema í foráttuflóðum.
Djúpadalsá þykir afar fallegt straumvatn og í ánni eru mjög margir fallegir veiðistaðir. Áin er nú leigð út í fyrsta skipti en nýgerður leigusamningur um ána, millum ábúenda í Djúpadal og Skrautáss ehf. (Krafla.is) er til 10 ára.
Hér fara á eftir upplýsingar um ána ásamt fjölda mynda úr Djúpadal.
Staðsetning
Í Djúpadal frá Reykjavík er um 230 km akstur. Gera má ráð fyrir 2,5 klst. akstri í Djúpadal frá Reykjavík.
Veiðisvæði
Djúpadalsá er veiðanleg á stöng á um 8 km veiðisvæði frá efsta veiðistað í gljúfri til neðsta veiðistaðar við sjávarmál. Á þessu veiðisvæði eru um 30 merktir veiðistaðir. Svo sem venja er um ár sem Djúpadalsá breytir hún farvegi sínum frá ári til árs. Leigutaki fylgist grannt með gangi mála og breytir farvegi árinnar árlega til betri vegar ef ástæða er til.
Tímabil
Veiði hefst í Djúpadalsá upp úr miðjum júlí í sumar og verður veitt út ágúst og ef til vill nokkra daga í byrjun september. Veiði hefst kl. 07.00 og er veitt til kl. 13.00. Þá tekur við tveggja klst. hvíldartími. Að honum loknum hefst veiði aftur kl. 15.00 og lýkur kl. 21.00 að kvöldi.
Veiðileyfi
Sumarið 2010 er veiði leyfð á 2-3 stengur í Djúpadalsá. Holl skipta á hálfum dögum. Kvóti er 10 fiskar á stöng á dag.
Agn
Eingöngu fluga er leyfilegt agn í Djúpadalsá.
Helstu flugur 2009
Hér ræður annars vegar smekkur leigutaka sem veitt hafa í ánni sl. 15 ár og veiðibók síðasta sumars. Krókurinn, SilungaKröflur í ýmsum litum, Beygla, Beykir og Mýsla, allt flugur sem fást á Krafla.is
Verð
Stangirnar tvær eða þrjár eru seldar saman í tvo eða þrjá daga í senn. Verð er kr. 18.500,- pr. stöng á dag. Innifalið er veiðileyfi, veiðihús og aðgangur að innisundlaug.
Meðalveiði
Djúpadalsá er sérstök að því leyti að sumarið 2007 var í fyrsta skipti skráður afli í veiðibók. Ástæðan er einföld. Ábúendur í Djúpadal hafa til margra ára selt veiðileyfi í ána og ekki þótti sérstök ástæða til að skrá afla veiðimanna í veiðibók. Meðalveiði áranna 2006, 2007, 2008 og 2009 var 750 bleikjur. Mest af bleikjunni er um 1 pund en inn á milli eru mun vænni fiskar. Mjög skemmtilegir fiskar á nettar flugugræjur. Síðustu fjögur árin hafa veiðst 30-65 sjóbirtingar og 25-35 laxar að meðaltali á sumri.
Veiðivörður
Leifur Samúelsson, bóndi í Djúpadal, er veiðivörður í Djúpadalsá.
Veiðihús
Veiðihúsið við Djúpadalsá er við bæinn í Djúpadal. Húsið er tveggja hæða steinhús og í því 4 herbergi með samtals 7 rúmum. Í húsinu eru dýnur fyrir nokkra til viðbótar. Í veiðihúsinu er öll almenn aðstaða í eldhúsi, allur borðbúnaður og á nýjum og stórum sólpalli nýtt afar glæsilegt gasgrill og húsgögn. Í veiðihúsi er einnig frystikista fyrir afla veiðimanna.
Leiðin í Djúpadal
Frá Reykjavík í Djúpadal eru um 230 km eins og áður sagði. Ekið er um Hvalfjarðargöng, gegnum Borgarnes og síðan um Bröttubrekku og Búðardal að Króksfjarðarnesi við Gilsfjörð. Þaðan er ekið sem leið liggur vestur um hina fögru Reykhólasveit, fyrir Þorskafjörð og yfir Hjallaháls. Þegar komið er upp á Hjallaháls blasir Djúpifjörður við í sinni fegurstu mynd og þar með talið ósasvæði Djúpadalsár. Er það fagurt með afbrigðum.
Loftmynd
Í veiðihúsinu í Djúpadal er ný loftmynd frá Landmælingum Íslands af vatnasvæði Djúpadalsár. Er myndin frá árinu 1991 en nýrri mynd er því miður ekki til í dag hjá Landmælingum Íslands!!!
Inn á loftmyndina eru merktir helstu veiðistaðir svo nákvæmlega sem það er hægt miðað við aldur myndarinnar.
Sundlaug
Veiðimenn í Djúpadalsá eiga þess kost að slaka á eftir skemmtilegan veiðidag í glæsilegri sundlaug innanhúss í Djúpadal. Sundlaugin er staðsett á árbakkanum í örstuttu göngufæri frá veiðihúsinu (3-5 mínútur) og sundið er innifalið í veiðileyfinu.
Hundar
Rétt er að taka fram að ekki er undir neinum kringumstæðum leyfilegt að hafa hunda eða önnur gæludýr meðferðis í Djúpadalsá.
Veiðibók og gestabók
Veiðimenn skrá afla og skemmtilegar sögur í veiðibók og gestabók í veiðihúsi. Aflann skrá menn mjög nákvæmlega, einn fisk í hverja línu veiðibókar og áhersla er lögð á nákvæma þyngd og skal þá notast við nákvæma vigt í veiðihúsi. Gestabókina nota menn til að miðla upplýsingum til næstu veiðimanna. Einnig eru gestir hvattir til að segja skoðun sína á aðstæðum í Djúpadal, hvað er í lagi og hvað má betur fara.






























