Krafla - Íslensk fluguveiði

Skip to Main Content »

Search Site
Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Sóley Björk vann fluguboxið – Gleðilega hátíð!

24.12.2011
Þetta er glæsilega fluguboxið sem Sóley Björk Guðmundsdóttir vann í getraun okkar í Kröflu.

Þetta er glæsilega fluguboxið sem Sóley Björk Guðmundsdóttir vann í getraun okkar.

Við erum búin að draga í getraun okkar sem við vorum með í gangi í desember. Í verslun okkar í Höfðabakka 3 var lítið og sætt jólatré og skreyttum við fluguveiðifólkið í Kröflu tréðað sjálfsögðu með Kröflutúpum í öllum regnbogans litum. Viðskiptavinir okkar áttu síðan að telja túpurnar. Fjölmargir tóku þátt í þessari skemmtilegu getraun og á trénu voru 32 Kröflutúpur.

Vinningshafinn heitir Sóley Björk Guðmundsdóttir og var hún að vonum ánægð þegar við hringdum í hana núna í hádeginu. ,,Þetta er æðislegt. Mig langaði ekki lítið í þetta glæsilega flugubox,“ sagði Sóley Björk þegar við slógum á þráðinn til hennar og hún bætti við: ,,Þú ættir að sjá öfundarsvipinn á manninum mínum sem stendur hérna við hliðina á mér. Hann fær eflaust að njóta góðs af þessu með mér og nú hlakka ég ofboðslega til að fara að veiða næsta sumar.“

Sóley Björk er stödd norður í landi í faðmi fjölskyldunnar á Sauðárkróki. Við afhendum henni boxið eftir áramótin og birtum mynd frá afhendingunni hér á Krafla.is

Við endurtökum svo leikinn að ári.

Veiðimönnum og veiðikonum um land allt óskum við gleðilegra jóla og farsældar á nýju veiðiári.

Opið í Kröflu á aðfangadag kl. 11 til 13

23.12.2011

Þann 24. desember, aðfangadag jóla, verður opið í Veiðibúðinni Kröflu í Höfðabakka 3 frá kl. 11 til 13.

Verðin í Kröflu eru mun betri en víða annars staðar – gerið verðsamaburð

23.12.2011
Þessar vöðlur frá Airflo kosta aðeins 39.900 krónur í Veiðibúðinni Kröflu. Sambærilegar vöðlur að okkar mati kosta tvöfalt og þrefalt meira í mörgum veiðibúðum.

Þessar vöðlur frá Airflo kosta aðeins 39.900 krónur í Veiðibúðinni Kröflu. Sambærilegar vöðlur að okkar mati kosta tvöfalt og þrefalt meira í mörgum veiðibúðum.

Greinilegt er að við hjá Kröflu erum með betri verð á okkar vörum en gengur og gerist í öðrum veiðibúðum. Mætti nefna mörg dæmi því til staðfestingar.

Í Kröflu, Höfðabkka 3, erum við með vöðlujakka sem kosta 22.900 krónur. Jakkinn er frá Airflo sem er mjög þekkt og gott merki, sem sagt vatnsheldur jakki og frábær í alla staði. Sambærilegur jakki er á mun hærra verði annars staðar. Þá erum við með vöðlujakka á tilboðsverði þar sem afsláttur er allt að 40%.

Mjög góður vöðlujakki frá Airflo. Jakkinn kostar aðeins 22.900,- krónur hjá Kröflu. Við skorum á veiðimenn að gera verðsamanburð.

Mjög góður vöðlujakki frá Airflo. Jakkinn kostar aðeins 22.900,- krónur hjá Kröflu. Við skorum á veiðimenn að gera verðsamanburð.

Við hjá Veiðibúðinni Kröflu skorum á veiðimenn að gera verðsamanburð. Við fullyrðum að veiðimenn eru á góðu kaupi þegar þeir eyða tíma í að bera saman verð hjá okkur og öðrum verslunum. Hægt væri að nefna mörg dæmi. Við seljum til dæmis vaðstaf á 8.800 krónur, tvö pör af hágæðasokkum í vöðlurnar og veiðitúrinn á aðeins 2.890 krónur. Gæða fluguhjól frá Echo á innan við 10 þúsund krónur og stangirnar okkar frá Echo eru á aðeins 24.900 til 78.880 krónur. Enn og aftur skorum við á veiðimenn að gera verðsamanburð á okkur og öðrum veiðiverslunum.

Glæsilegir vöðluskór á aðeins 18.900,- krónur.

Glæsilegir vöðluskór á aðeins 18.900,- krónur.

Ótrúlegt tilboð: Krafla býður upp á frí fluguhjól, aukaspólu, flotlínu og 6 flugur í boxi í fluguveiðipökkunum

22.12.2011
Mjög mikið úrval er af fluguboxum í Kröflu og landsins mesta úrval af íslenskum flugum.

Mjög mikið úrval er af fluguboxum í Kröflu og landsins mesta úrval af íslenskum flugum.

Verðin hjá okkur í Veiðibúðinni Kröflu við Höfðabkka 3 á fluguveiði-pökkunum hafa vakið mikla athygli enda vandfundin önnur eins tilboð fyrir jólin að þessu sinni.

Segja má að í öllum pökkunum sé viðskiptavinurinn einungis að greiða fyrir flugustöngina en fái fluguhjólið með aukaspólu, flotlínu, undirlínu og 6 flugur í boxi ókeypis með. Við megum víst ekki fullyrða að þetta séu ódýrustu og bestu fluguveiðisettin eða fluguveiðipakkarnir fyrir þessi jól en allir sem séð hafa eru akkúrat á þeirri skoðun. Enn eigum við eftir eitthvað lítið magn af öllum pökkunum en nánar er hægt að skoða innihald pakkanna á Krafla.is undir hnappnum Jólapakkar.

Um er að ræða 5 mismunandi pakka og kosta þeir frá 14.900 krónum til 84.900 krónur. Stangirnar eru allar nema ein með lífstíðarábyrgð. Við hjá Kröflu bjóðum upp á mjög margt sniðugt í jólapakkann fyrir veiðimenn. Við erum með frábært vöðlutilboð í gangi og mjög mikið úrval af fluguboxum með glæsilegum íslenskum flugum.

Við erum með opið fram eftir kvöldi í kvöld og opnum á morgun á Þorláksmessu kl. 10 og verður opið hjá okkur til kl. 20 um kvöldið. Loks verðum við með opið á aðfangadg frá kl. 11 til 13.

Frábær fluguveiðipakki sem kostar aðeins stangarverðið. Fluguhjól með aukaspólu, flotlína og undirlína og 6 flugur í boxi fylgja frítt með. Ótrúleg kaup.

Frábær fluguveiðipakki sem kostar aðeins stangarverðið. Fluguhjól með aukaspólu, flotlína og undirlína og 6 flugur í boxi fylgja frítt með. Ótrúleg kaup.